Chat with us, powered by LiveChat
Go to content

Björgunargagnablöð

Gagnablöð neyðar- og viðbragðsaðila fyrir Kia bifreiðar.

Á síðunni er að finna öryggisupplýsingar fyrir Kia bifreiðar. Gagnablöðin eru eingöngu ætluð neyðar og viðbragðsaðilum á sviði tækniaðstoðar.

Allar upplýsingar í gagnablöðunum eru eingöngu fyrir ökutæki sem ætluð eru á evrópskan markað. Uppbygging ökutækja með stýrið hægra megin getur verið með öðrum hætti.

Ökutæki og útfærslur á búnaði eru háðar stöðugum breytingum. Kia áskilur sér rétt til að hætta framleiðslu eða breyta hönnun og tækniútfærslu án fyrirvara eða skuldbindinga.

Ath.: Þessar upplýsingar eru eingöngu ætlaðar þjálfuðu starfsfólki en ekki endanlegum bílkaupendum, starfsmönnum á verkstæðum eða söluaðilum.

Smellið á niðurhalstáknið á síðunni hér að neðan til að nálgast björgunargagnablöð fyrir núverandi gerðir ökutækja okkar.

Vinsamlega athugið að ekki er vísað til björgunargagnablaða fyrir eldri gerðir á einstökum niðurhalstáknum. Þau má hlaða niður í gegnum táknið Björgunargagnablöð 07/21 og eru geymd í þjöppuðum skrám.