Chat with us, powered by LiveChat
Go to content

7 ára ábyrgð

  • 7 ára ábyrgð

    Yfirgripsmikil 7 ára ábyrgð

Við treystum á Kia

7 ára ábyrgð Kia er ein umfangsmesta ábyrgð sem völ er á. Í Þjónustuhandbók Kia og ábyrgðarskilmálum er að finna greinargóða lýsingu á ábyrgðinni, skyldum Kia, Öskju og Kia eigenda, upplýsingar um það sem ábyrgðin nær og nær ekki til, ábyrgð gagnvart gegnumtæringu, ábyrgð á varahlutum, takmörkun ábyrgðar, skýrslur um reglubundið viðhald, ryðvarnareftirlit, skýrslur um endurnýjun kílómetrateljara, síma- og netfangaskrá, upplýsingar um þjónustutíma deilda, auk annarra hagnýtra upplýsinga.

Forsendur ábyrgðar

Til að uppfylla ábyrgðarskilmálana þarf að fara með Kia bifreiðina þína í reglubundið þjónustueftirlit samkvæmt fyrirmælum framleiðanda. Forsendur ábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit sem kaupandi ber kostnað af.
Viðurkenndir þjónustuaðilar fyrir Kia á Íslandi má finna hér .

Viðgerðir sem falla undir ábyrgð

Þú ferð með Kia bifreiðina þína ásamt þessari þjónustuhandbók til viðurkennds þjónustuaðila Kia. Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Kia geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð, en við mælum með því að þú leitir til þess aðila sem þú keyptir bifreiðina af, ef nokkur kostur er – það hjálpar til ef þeir þekkja til þín og Kia bifreiðarinnar þinnar.

  • Séð inn á verkstæði Kia

  • Þjónustuhandbók Kia

    Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur ábyrgðarskilmálana nánar með því að smella á hlekkinn hér að neðan.

  • 7 ára ábyrgð

    Það sem aðgreinir Kia frá öllum öðrum bílum felst í þremur orðum: 7 ára ábyrgð. Við erum í fararbroddi á markaðnum með þessa yfirgripsmiklu ábyrgð sem endurspeglar um leið þá tiltrú sem við höfum á hverjum þeim bíl sem er framleiddur af Kia. Ábyrgðin færir þér fullkomna hugarró ekkert skemur en í 7 ár.

Algengar spurningar: 7 ára ábyrgð

Mikil framleiðslugæði verksmiðja okkar jafnt í Evrópu sem annars staðar í heiminum gefur Kia tilefni til að bjóða þessa einstöku ábyrgð sem er einstæð á evrópskum markaði.

Allra nýrra Kia ökutækja sem eru keypt og skráð eftir 1. janúar 2010.

Já, sumir íhlutir hafa takmarkaðan líftíma/endingu og eru þess vegna í ábyrgð skemur en 7 ár. Þessir íhlutir eru: Rafgeymir (2 ár), hljómtæki, leiðsögukerfi og afþreyingarkerfi (3 ár/hámark 100.000 km) og lakk á yfirbyggingu (5 ár/150.000 km).

Ábyrgðin flyst til nýs eiganda á meðan ábyrgðina er enn í gildi.